Use LEFT and RIGHT arrow keys to navigate between flashcards;
Use UP and DOWN arrow keys to flip the card;
H to show hint;
A reads text to speech;
42 Cards in this Set
- Front
- Back
Hvað felst í námi? |
Nám felst í því að læra af reynslu sinni. |
|
Hvað er einfaldasta gerð náms? |
Tengslanám. |
|
Hver eru helstu lögmál sem atferlisstefnan kom með í tengslum við nám? |
Viðbragðsskilyrðingu Virk skilyrðing |
|
Hvernig skilgreina atferlissinnar nám? |
Nám er tiltölulega varanleg atferlisbreyting sem leiðir af þjálfun. |
|
Hvernig skilgreina hugfræðingar nám? |
Nám er tiltölulega varanleg atferlis- eða vitundarbreyting sem leiðir af þjálfun. |
|
Hvernig er skilgreinning allra sjónarmiða um nám? |
Nám er: tiltölulega varanleg atferlis- eða vitundarbreyting sem leiðir af þjálfun og markar spor í taugakerfið |
|
Í augum atferlis, hvers konar grein á sálfræði að vera? |
Raunvísindagrein |
|
Hvert er hlutverk sálfræðinnar í augum atferlissinna? |
Hlutverk sálfræðinga er að finna þau lögmál sem hegðun lýtur |
|
Hvað er tengslanám? |
Tengslanám: Dýr/maður lærir að einn atburður (áreiti) er tengdur öðrum atburði(áreiti-svörun). |
|
Það má skipta tengslanámi í hvað? |
–Viðbragðsskilyrðingu –Virkaskilyrðingu |
|
Pavlov kom með hvaða lögmál? |
Viðbragðsskilyrðingu |
|
Skinner kom með hvaða lögmál? |
Virka skilyrðingu |
|
Viðbragðsskilyrðingu er skipt í 4 mikilvæg hugtök. Hvað heita þau. |
Óskilyrt áreiti (ÓA)
Óskilyrt svörun (ÓS) Skilyrt áreiti (SÁ) Skilyrt svörun (SS) |
|
Út á hvað gengur Virk skilyrðing? |
Í virkri skilyrðingu er gengið út frá því að einstaklingurinn sé virkur í umhverfinu, það er hann er hluti af umhverfinu. Hver hegðun á sér þannig afleiðingu og sú afleiðing hefur áhrif á hvort, og þá hversu oft, einstaklingurinn endurtekur þá hegðun. |
|
Gefðu dæmi um Virka skilyrðingu. |
Dæmi um þetta er rotta í tilraunabúri (Skinner) þar sem slá er á einum vegg búrsins. Ef rottan styður framfótunum á slána kemur matur niður í lítinn dall. Virka hegðunin er það sem rottan gerir rétt fyrir styrkinn, það er sú hegðun að styðja framlöppunum á slána. Afleiðingin, hér maturinn, veldur því að rottan fer að styðja mun oftar á slána en áður. |
|
Hvað er Óskilyrt áreiti? |
Óskilyrt áreiti (ÓA) – er áreiti sem vekur áskapað (meðfædda) svörun, oft ósjálfrátt viðbragð, áður en skilyrðing á sér stað (maturinn sem hundurinn fékk)
|
|
Hvað er Óskilyrt svörun? |
Óskilyrt svörun (ÓS) – er svörun við óskilyrta áreitinu, áður en hlutlausa áreitið er tengt við óskilyrta áreitið (slef hundsins)
|
|
Hvað er Skilyrt áreiti? |
Skilyrt áreiti (SÁ) – er áður hlutlaust áreiti sem vekur skilyrta svörun eftir að hafa verið parað við óskilyrta áreitið (í dæminu með hundinn er það bjölluhljóðið þegar búið var að para það við matinn)
|
|
Hvað er Skilyrt svörun? |
Skilyrt svörun (SS) – er lærð eða áunnin svörun við áreiti sem upphaflega vakti ekki þessa svörun (í þessu tilfelli slef við skilyrta áreitinu þ.e. Bjölluhljóðinu).
|
|
Hvað er festingarskeið? |
Festingarskeið – Tímabilið þar sem dýrið lærir umtengsl skilyrta og óskilyrta áreitisins |
|
Hvað er alhæfing? |
Alhæfing– Þegar lík áreiti vekja líka skilyrta svörun. Styrkur svörunarinnar fer þó eftir því hversu líkt nýja áreitið er skilyrta áreitinu |
|
Hvað er slokknun? |
Slokknun – Þegar dregur úr svörun t.d þegar matur hættir að koma eftir bjölluhljóðið þá dregur úr skilyrtu svari þ.e slef við bjölluhljóðinu. |
|
Hvað er sundurgreining? |
Sundurgreining – Þegar svipuð áreiti vekja ólíksvör |
|
Hver gerði tilraunina með Albert litla? |
John B. Watson |
|
Hvaða lögmál kom Edward Thorndike með sem er tengt Virkri Skilyrðingu? |
Árangurslögmálið |
|
Út á hvað gengur áranguslögmálið? |
Svaranir sem hafa jákvæðar afleiðingar verða tíðari, hinar detta út. |
|
Hver eru afbrigði virkrar skilyrðingar? |
Jákvæðstyrking (eykur hegðun) Brottnámsskilyrðing(dregur úr hegðun) Refsing(dregur úr hegðun) Neikvæðstyrking (eykur hegðun) |
|
Hvernig virkar Jákvæð styrking? |
Það er þegar þú gerir eitthvað jákvætt og færð eitthvað jákvætt. |
|
Hvernig virkar Neikvæð styrking? |
Það er þegar þú gerir eitthvað gott og losnar við eitthvað neikvætt. |
|
Hvernig virkar Brottnámsskilyrðing? |
Það er þegar þú gerir eitthvað neikvætt og það er tekið eitthvað jákvætt af þér. |
|
Hvernig virkar Refsing? |
Þú gerir eitthvað neikvætt og þér er refsað. |
|
Nefndu fjögur snið sketrar styrkingar. |
Regluleghlutfallsstyrking (RH) Óregluleghlutfallsstyrking (ÓH) Reglulegtímastyrking (RT) Óreglulegtímastyrking (ÓT) |
|
Hver eru einkenni snið sketrar styrkingar? |
Regluleghlutfallsstyrking (RH) – Alltaf styrkt eftir tiltekinn fjölda svaranna t.d.eftir 10 svör. Óregluleghlutfallsstyrking (ÓH) – Styrkt fyrir ákveðinn meðaltalsfjölda svara t.d. íkringum 10 svör (stundum eftir 9 svör og stundum eftir 11 svör) Reglulegtímastyrking (RT) – Styrkt reglulega t.d á mínútu fresti. Óregluleg tímastyrking (ÓT) –styrkt óreglulega en að meðaltali að ákveðnum tíma liðinum t.d. í kringum 10mínútur. |
|
Hvaða snið er best að nota? |
Óregluleg hlutfallsstyrking (ÓH) |
|
Hvenær er gott að nota námssálfræði? |
•Í uppeldis- og kennslumálum
•Við atferlismótun
•Í klínískri sálfræði: við atferlismeðferð og skýringar á geðröskunum
•Í skrifum um þjóðfélagsmál |
|
Hvað er atferlismótun? |
Atferlismótun er sú aðferð sem atferlissinnar beita til að móta eða breyta hegðun sem hefur farið aflaga. |
|
Hvað er kerfisbundin ónæming? |
Það er atferlismeðferð þar sem sálfræðingur og skjólstæðingur búa saman til eins kona þrepalíkan fyrir ógnvekjandi aðstæður |
|
Hvað er táknameðferð? |
Það er þegar þú styrkir jákvæða hegðun með jákvæðri styrkingu t.d. þegar þú gerir eitthvað gott færðu nammi eða eitthvað annað gott. |
|
Hver er mest notaða og skilvirkasta meðferð sálfræðinnar? |
Hugrænatferlismeðferð |
|
Heilinn er skiptur í 3 svæði sem heita? |
Framheili Miðheili Tígulheili |
|
Hvar og hvað er Randkerfið? |
Randkerfið er í Framheilanum. Stjórn á geðsveiflum og tilfinningum. |
|
Nefndu alla parta taugafrumu. 7 atr. |
Griplur Frumbolur Kjarni Mýelínsliður Ravier-mót Taugasími Símahnúðar |