Use LEFT and RIGHT arrow keys to navigate between flashcards;
Use UP and DOWN arrow keys to flip the card;
H to show hint;
A reads text to speech;
17 Cards in this Set
- Front
- Back
Afhverju voru Sameinuðu þjóðirnar stofnaðar og hver var tilgangur þeirra? |
Sameinuðu þjóðirnar viru stofnaðar eftir seinni heimsstyrjöldina til að tryggja alheimsfrið. |
|
Hvað er "kalt stríð" og milli hvera var Kalda stríðið? |
Í köldu stríði er ekki barist á neinn hátt en samt ríkir einhverskonar spenna og stríðsástand. Kaldastríðið var á milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. |
|
Hvað er pólitískur flóttamaður? |
Pólitískur flóttamaður flýr úr landi vegna pólitískra skoðanna sinna. |
|
Hvað einkennir lýðræði og hvað einkennir einræði? |
Tjáningafrelsi einkennir lýðræði. Aðeins ríkistjórn ræður í einræði. |
|
Hvað er átt við með orðinu velferðarsamfélag? |
Velferðarsamfélag er það kallað þegar hið opinbera stjórnkerfi sér um að enginn líði skort, sama hve illa hann er hæfur til að vinna fyrir sér. |
|
Hvað er Atlantshafsbandalagið (NATO)? |
Bandalagið var stofnað sem hernaðarbandalag og aðildarlöndin skuldbundu sig til að koma hvert öðru til hjálpar í stríði. |
|
Afhverju eru Íslendingar í NATO? Er það rétt? |
Til að við fengjum vörn ef einhver ræðst á okkur. Já, mér finnst það rétt. |
|
Hvers vegna og hvers vegna ekki? |
Til að fá vörn. Því Ísland vill vera herlaust land. |
|
Hvað var Berlínarmúrinn? |
Múr sem hindraði að fólk í austur-Þýskalandi myndi flýja til vestur-Þýskalands. |
|
Hvenær var Berlínarmúrinn byggður og hvenær rifinn? |
1961 16.ágúst var hann byggður en rifinn 1989. |
|
Hvað var Marshall-hjálpin? |
Efnahagshjálp frá Bandaríkjunum sem átti að vera notuð til að byggja upp löndin að nýju eftir seinni heimsstyrjöldina. Fólk þurfti að skuldbinda sig til að vera með í OEEC sem stuðlaði að frjálsri verslun í Evrópu. |
|
Hvað var ákveðið í Keflavíkursamningnum? |
Bandaríkja menn fengu að hafa herlið á Keflavíkurflugvelli frá og með 7. maí 1951 og voru þar í u.þ.b 55 ár. |
|
Hvað nær fiskiveiðilög saga Íslendinga langt? |
Frá árinu 1950. |
|
Hvers vegna eru sumir á móti stóriðjustefnu? |
Mörgum fannst óhæfa að hleypa inn í landið svona miklum atvinnurekstri í eigu útlendinga, það var talin skerðing á fullveldi okkar. Einnig voru náttúruverndarsjónarmið að eflast. |
|
Í hvaða bandalögum eru og hafa íslendingar verið? |
EFTA, NATO, SÞ, OEEC, norðurlandaráð og evrópska efnahagssvæðið. |
|
Nefnið þrennt sem var betra við almannatryggingarnar 1946 en alþýðutryggingarnar 1936? |
Foreldrar sem áttu þrjú eða fleiri börn fengu bætur, allir sem áttu rétt á bótum fengu þær sama hver efnahagurinn var og bætur urðu margfalt hærri. |
|
Hvernig gat atvinnulaust fólk lifað af áður en atvinnuleysistryggingarnar komust á? |
Fólk gat sótt um sveitastyrk en það var ekki vinsælt. |