Use LEFT and RIGHT arrow keys to navigate between flashcards;
Use UP and DOWN arrow keys to flip the card;
H to show hint;
A reads text to speech;
20 Cards in this Set
- Front
- Back
Hver er skilgreiningin á líftæknilyfi (biologics)? |
Líftæknilyf eru búin til með líffræðilegum ferlum en ekki búin til efnafræðilega. Þarna eru lifandi frumur notaðar í lækninagskyni, t.d. bóluefni, þættir úr blóði, sómatískar frumur, genalækningar ofl. |
|
Hver er munurinn á monoclonal og polyclonal mótefnum? |
Monoclonal eru mótefni sem eru framleidd af nákvæmlega eins ónæmisfrumum (sem eru klón af móðurfrumunni). Polyclonal eru hins vegar mótefni sem eru búin til af nokkrum ólíkum ónæmisfrumum. |
|
Hvað eru fusion protein (receptor constructs)? |
Það eru prótein sem eru tjáð eftir samruna tveggja eða fleiri gena sem upphaflega kóðuðu fyrir ólíkum próteinum. |
|
Hverjar eru almennar aukaverkanir líftæknilyfja? |
1. ofnæmisviðbrögð 2. aukin hætta á krabbameinum 3. sýkingar: bakteríur, berklar, ífarandi sveppasýkingar, endurkoma hepB |
|
Hvernig lyf er infliximab (remicade)? Við hverju er það notað? Hversu oft er það gefið? |
Það er TNF-alfa hemill, þ.e. myndar einstofna (monoclonal) mótefni gegn TNF-alfa. Það er notað við sjálfsofnæmissjd eins og Crohns, ulcerative colitis, liðagigt ofl. Það er gefið í æð á 6-8 vikna fresti. |
|
Hvers konar lyf er etanercept (enbrel)? Við hverju er það notað? Hversu oft gefið? |
Það er viðtakablokki fyrir TNF. Notað við alls konar gigt; psoriasis, liðagigt ofl. Gefið 2x í viku. |
|
Hvernig lyf er adalimumab (humira)? Hverjar eru ábendingar? Hvernig er það gefið? |
Það er TNF-hemill. Það binst sértækt við TNF og hlutleysir líffræðilega verkun þess með því að hindra milliverkun þess við p55 og p75 TNF-viðtaka á yfirborði frumna. Ábendingar: iktsýki, psoriasis liðagigt, Crohns ofl. Er gefið undir húð. |
|
Hvernig lyf er golimumab (simponi)? Hverjar eru ábendingar? |
Þetta er TNF-hindri. Þetta er manna IgG1 einstofna mótefni gegn TNF. Ábendingar: liðagikt, psoriasis gigt, hrygggigt |
|
Hvernig lyf er anakinra (kineret)? Við hverju er það notað? Hverjar eru aukaverk? |
Þetta er IL-1-viðtakahemill. Er notað við iktsýki (ekki með hömlun á TNF). Aukaverk: kirningafæð, alvarlegar sýkingar. |
|
Hvernig lyf er rituximab (mabthera)? Við hverju er það gefið? |
Það er einstofna mótefni gegn CD-20 viðtaka á yfirborði B-frumna (hann stjórnar upphafi frumuhringsins). Gefið við: lymphoma, leukemia, RA, nýrnaígræðslu. |
|
Hvernig lyf er abatacept (orencia)? |
Það er einstofna mótefni sem binst CD80 og CD86 á virkjuðum B-frumum (og þar með virkjast ekki CD28 á óþroskuðum T-frumum). Notað við liðagigt hjá börnum og fullorðnum. |
|
Hvað þarf til að fullvirkja T-frumur? Hvernig hindrar abatacept virkjunina? |
1. boð: MHC binst við TCR og sýnir T-frumunni antigenið. 2. boð: binding CD80/CD86 á sýnifrumum við CD28 viðtakann á T-frumunni (costimulatory signal). Abatacept kemur í veg fyrir þessa gengingu með því að bindast CD80/86. |
|
Hvernig lyf er tocilzumab? Við hverju er það notað? |
Það er einstofna mótefni gegn IL-6 viðtaka. Það er notað við liðagigt. |
|
Hvernig lyf er ustekinumab? Við hverju er það notað? |
Það er einstofna mótefni gegn IL-12. Er notað við psoriasis. |
|
Hvernig lyf er belimumab? Notkun? |
Það er hindri á B-cell activating factor (BAFF). Notkun: SLE |
|
Hvernig lyf er natalizumab? Notkun? Aukaverkanir? |
Það er einstofna mótefni gegn alfa4-beta-1 integrini (miðlar tengingu HBK við VCAM1 á endotheli). Notkun: við multiple sclerosis Aukaverkanir: augljóslega sýkingar þar sem HBK eru hindruð! |
|
Hvernig lyf er fingolimod? Fer það yfir BBB? |
Það er sphingosin-1-fosfat (S1P) viðtakahemill (en viðtakinn er á eitilfrumum). Fingolimod fer greiðlega yfir BBB og binst S1P viðtaka á taugafrumum í MTK. |
|
Af hverju getur verið gott að hemla S1P viðtaka á eitilfrumum? |
Meðþví að verka sem hemill á S1P viðtaka á eitilfrumum hamlar fingolimod getueitilfrumna til að ferðast úr eitlunum. Það dregur úr íferð sjúkraeitilfrumna í MTK en þar myndu þær valda taugabólgu og skemmdum átaugavef. Notkun: MS |
|
Hvernig lyf er secukinumab? Notkun? |
Það er hemill á IL-17. Notað við plaque psoriasis. |
|
Skoða töflu í glærum! |
vúhúú |